FYRIR FYRIRTÆKI SEM ÞURFA BETRI YFIRSÝN YFIR FÓLK, VERK OG ÞJÓNUSTU
Krafta sameinar beiðnir, verkefni, tímaskráningu, vettvangsgögn, samþykktir og uppgjör í einu flæði. Frá fyrstu beiðni til lokaðs verks.

Frá beiðni og skipulagi yfir í framkvæmd, skráningu, eftirfylgni og uppgjör.
Taktu við beiðnum, stofnaðu verk og fylgdu ábyrgð, stöðu og næstu skrefum á einum stað.
Yfirsýn yfir vaktir, verkefni, mannafla og álag svo verkstjórar sjái hvað þarf að gerast næst.
Gefðu starfsmönnum, verktökum og verkkaupendum réttan aðgang að hverju verki. Stýrðu hver má vinna, samþykkja, breyta eða aðeins lesa.
Tengdu tíma, efni, akstur og gögn við verk svo uppgjör verði hraðara og minna fari á milli kerfa.
Onboarding, hlutverkaskipting og aðgangsstjórnun eftir teymi.
Skráning á tíma, mætingu, fjarvera og vinna á verkum, hvort sem fólk er á skrifstofu eða vettvangi.
Mismunandi hlutverk þurfa mismunandi yfirsýn. Krafta sýnir rétt gögn fyrir rétt fólk í daglegum rekstri.
Krafta hjálpar þér að sjá stöðu verka, ábyrgð, kostnað og frávik fyrr. Þú sérð hvað er í gangi, hvað vantar og hvar þarf að bregðast við.
Krafta hjálpar þér að halda utan um verk, fólk, stöðu og gögn á einum stað. Þú sérð hvað er búið, hvað vantar og hver ber ábyrgð án þess að þurfa að elta allt í símtölum og skilaboðum.
Krafta hjálpar þér að skrá það sem þarf þegar vinnan gerist. Þú sérð hvað á að gera, hvar verkið er og getur skilað inn tíma, myndum og athugasemdum án óþarfa vesens.
Krafta hjálpar þér að fá réttu gögnin inn á verkið um leið og þau verða til. Þú þarft síður að elta tíma, kostnað, myndir, athugasemdir og samþykktir þegar kemur að eftirfylgni og uppgjöri.
Þá tapast yfirsýn, ábyrgð verður óskýr og tími fer í að elta upplýsingar sem hefðu átt að vera á réttum stað frá byrjun.
Tímar, gögn, ákvarðanir og athugasemdir eru enn í símum, póstum eða hjá einstaka fólki.
Verkstjórar og stjórnendur eyða tíma í að finna hvað er búið, hvað vantar og hver ber ábyrgð.
Þegar tími, efni, akstur og vinna eru ekki tengd við rétt verk tapast sýn á raunverulegan kostnað.
Þú sérð vandamálið eftir að það er orðið dýrt, tafir eða farið að hafa áhrif á viðskiptavin.
Þegar breytingar, ákvarðanir og samþykktir eru ekki skráðar verður erfitt að rekja hvað gerðist.
Excel, tölvupóstar og handvirkt uppgjör kosta meiri tíma en þeir eru þess virði.

Gögn skrást þar sem vinnan gerist og fylgja verkefninu áfram. Stjórnendur sjá stöðuna, skrifstofa fær betri gögn og uppgjör verður einfaldara.
Frá fyrstu beiðni til lokaðs verks með skýrari stöðu, betri gögnum og minni handavinnu.
01
Tími, myndir, athugasemdir, efni og ákvarðanir tengjast réttu verki frá byrjun.
02
Staða, næstu skref og það sem vantar sést fyrr. Minni tími fer í að elta upplýsingar.
03
Skrifstofa, verkstjórar og stjórnendur vinna með sömu gögn í stað þess að laga þau eftir á.
04
Betri yfirsýn, minni handavinna, skýrari uppgjör og hraðari viðbrögð þegar eitthvað fer úr skorðum.
Við sýnum þér hvernig Krafta tengir saman beiðnir, verk, fólk, gögn og uppgjör í einu flæði. Án skuldbindingar.